OneWorkSpace - Verkefnavefur á nokkrum mínútum
Hvað er OneWorkspace?
Með OneWorkSpace getur þú búið til þitt eigið verkefnasvæði innanhúss eða verkefnavef á örfáum mínútum og hefur möguleika á að leyfa aðgang verktaka og fleiri aðila inn á læst verkefnasvæði eða vef. Þetta sparar mikinn tíma í samstarfsverkefnum.
Með OneWorkSpace getur þú bætt við eða boðið þeim sem þú vinur með og utanað komandi verktökum á vinnusvæðið þitt. Þú hefur góða yfirsýn yfir allt sem viðkemur verkefnum og skiladögum á þeim sem þú vinnur að á hverjum tíma, auk funda, verkefna kontakt aðila, samninga, mála, tölvupósta, frétta, dagatal með tímalínu fyrir verkefni, tilkynningar og samskipti á einum stað.
OneWorkSpace er kerfi sem byggir á Microsoftt tækni og er viðbót við OneRecords mála- og skjalakerfi.
Af hverju OneWorkSpace?
OneWorkSpace er lausn sem sparar þér tíma og vinnu og veitir þér yfirsýn yfir verkefni sem hjálpar þér að ljúka þeim á umsömdum tíma og fljótar heldur en ella. Í OneWorkSpace eru allar upplýsingar um verkefnin aðgengileg á einum stað með góðu aðgengi og aðgangsstýringu fyrir þá sem að verkinu koma. Nýtt vinnusvæði er svo auðvelt að stofna á aðeins nokkrum mínútum.
- Í OneWorkSpace getur þú stofnað verkefnavef með stöðluðu sniðmáti á nokkrum mínútum.
- OneWorkSpace gerir það auðvelt og aðgengilegt að halda utan um allar upplýsingar og gögn sem varða verkefni.
- Skýrt dagatal og tímalína tengd öllum skilgreindum verkefnum og áminning vegna skiladaga
- OneWorkSpace sendir út fundarboð í gegnum Outlook Calendar.
- Einföld leið til að tengjast, flytja inn eða stofna skjöl í OneWorkSpace sem tölvupóst, Word-, Excel- eða önnur Office skjöl auk mynda og PDF skjala sem fylgja þurfa verkum.
- OneWorkSpace tengist auðveldlega notendaviðmóti eins og Word, Excel, Outlook osfrv.
- Það er einfalt að aðlaga og breyta virkni OneWorkSpace til að henta þínum þörfum.
Kröfur:
Biðlari: Windows XPpro/Win7 Internet Explorer 7.0 / 8.0 eða nýrri.
Miðlari: Windows 2003/2008 Vefþjónn eða nýrri, MS SQL 2005/2008 eða nýrri.
Miðlari: Windows 2003/2008 Vefþjónn eða nýrri, MS SQL 2005/2008 eða nýrri.
< Fyrri | Næsta > |
---|