OneCrm - Samskipta- og skjalakerfi
Hvað er OneCrm?
OneCrm samskipta- og skjalastjórnunarkerfi sem byggir á Microsoft™ stýrikerfum og vefviðmóti. OneCrm heldur utan um skjöl og samskipti við viðskiptavini og birgja. Hægt er að flokka viðskiptavini á ýmsa vegu sem hægt er að greina út síðar. Kerfið kemur skipulagi á öll óformuð skjöl, svo sem Word, Excel, tölvupóst, myndir o.s.frv. Notandi getur á auðveldan hátt nálgast þau skjöl í kerfinu sem skipta hann máli. Kerfið uppfyllir ítrustu öryggiskröfur t.d. eins og lög og reglur um bankaleynd. OneCrm er eins og öll önnur One kerfi, "thin client", þar sem það þarf aðeins vefrápara til að nota kerfið.
Af hverju OneCrm?
OneCrm er hagkvæm lausn sem auðveldar fyrirtækjum og stjórnendum þeirra að bæta þjónustu við viðskiptavini. Í OneCrm er hægt að sjá allar upplýsingar um viðskiptavini á einum stað, hvort sem um ræðir samskipti og skjöl eða t.d. fjárhagslegar upplýsingar úr ERP kerfum. OneCrm uppfyllir kröfur um atvinnuflokkagreiningar IST3829. Þar sem OneCrm er miðlægt kerfi með vefviðmóti er það létt í viðhaldi og þjónustu þar sem viðhald er miðlægt á miðlara og þar með er kostnaður í dreifðum umhverfum minni.· OneCRM kemur skipulagi á óformuð skjöl.
- OneCRM inniheldur öfluga leitarvél.
- Auðvelt að koma skjölum inn í OneCRM t.d. skönnuðum skjölum.
- OneCRM tengist við office umhverfi notanda t.d. Word, Excel, Outlook o.s.frv.
- OneCRM styður öryggi niður á einstök skjöl (Item Level Security).
- Viðmót OneCRM er stillanlegt niður á einstaka notendur, þ.m.t. tungumál og aðgerðir.
- Auðvelt að aðlaga og breyta OneCRM.
- OneCRM hentar vel til samþættingar upplýsingakerfa.
- OneCRM skalast vel með vélbúnaði og stýrikerfi.
Skoða / sækja PDF skjal
Kröfur:
Biðlari: Windows 95/98/NT/ME/2000/XP/Vista. Internet Explorer 6.0 eða nýrri.
Miðlari: Windows 2000/2003/2008 Server eða nýrri, MS SQL 2005 eða nýrri, Exchange 2000 SP3, IIS 5.0 eða nýrri. MSXML3.0 SP2 eða nýrri.
< Fyrri | Næsta > |
---|