OneLand - Byggingafulltrúakerfi
Hvað er OneLand?
OneLand er kerfi sem byggir á Microsoft stýrikerfum og vef-viðmóti og er viðbót við OneRecords. OneLand er sérstaklega gert fyrir byggingarfulltrúa. Hvert mál hefur ákveðinn líftíma, öryggi, ábyrgðarmann, einkvæmt númer, tegund, málaflokkun, bréfalykla og aðrar upplýsingar sem skipta máli við úrvinnslu málsins. OneRecords hjálpar fyrirtækjum og stofnunum við að uppfylla nýjar kröfur um skjalastjórnun "Information and documentation Records Management" (ISO 15489).
Af hverju OneLand?
OneLand er öflug lausn sem auðveldar byggingarfulltrúaembættum hjá sveitarfélögum og stjórnendum þeirra að halda utan um þau mál sem eru í gangi á hverjum tíma ásamt því að halda fullu öryggi á einstökum skjölum. Stjórnendur geta séð ýmiskonar yfirlit yfir þau mál sem eru í gangi, sem auðveldar þeim yfirsýn yfir gang mála innan fyrirtækisins. Notendur geta á einfaldan máta sótt lista yfir þau mál sem þeir bera ábyrgð á. Með öflugri leitarvél er hægt að framkvæma margvíðar leitir og greiningar á málum. OneRecords getur hjálpað fyrirtækjum og stofnunum að uppfylla ISO 17799/BS 7799 staðalinn um upplýsinga- og gagnaöryggi.
Hverjum hentar OneLand?
OneLand hentar mjög vel t.d. bæjarfélögum og stofnunum og öllum fyrirtækjum þeim sem hafa skjalaskyldu eða vilja halda utan um sín mál og skjöl á skipulegan hátt og auðvelda aðgengi gagna.
- OneLand auðveldar starfsmönnum byggingarfulltrúa að hafa sín mál sér.
- OneLand; Yfirlit yfir lóðir, meistara, úttektir, umsóknir um lóðir, umsóknir um byggingarleyfi o.s.frv.
- Auðvelt er að skrá mál og koma skjölum inn í OneRecords t.d. skönnuðum skjölum, tölvupósti ofl.
- OneLand er hægt að tengja við; Fasteignamat Ríkisins, Landupplýsingakerfi, Þjóðskrá, Teikningar, Loftmyndakerfi, o.s.frv.
- OneLand styður öryggi niður á einstök skjöl .Item Level Security. og notar .Microsoft Active Directory. til þess.
- Auðvelt er að aðlaga og breyta OneLand.
Skoða / sækja PDF skjal
Kröfur:
Biðlari: Windows 95/98/NT/ME/2000/XP/Vista. Internet Explorer 6.0 eða nýrri.
Miðlari: Windows 2000/2003/2008 Server eða nýrri, MS SQL 2005 eða nýrri, Exchange 2000 SP3, IIS 5.0 eða nýrri. MSXML3.0 SP2 eða nýrri.
< Fyrri | Næsta > |
---|