VM - Félag vélstjóra og málmtæknimanna festir kaup á One mála og skjalakerfi fyrir starfsemi sína
Félag vélstjóra og málmtæknimanna festi nýverið kaup á One mála- og skjalakerfi fyrir starfsemi sína. Bætist þá í hópinn enn einn öflugur viðskiptavinur í hóp þeirra sem nota One kerfi, en fleiri og fleiri samtök, sjá hag sinn í að taka One kerfi í þjónustu sína. VM mun byrja á að taka eftirfarandi keri í notkun:
- One CRM,sem er samskipta- og skjalastjórnunarkerfi. Kerfið kemur skipulagi á öll óformuð skjöl, svo sem Word, Excel, tölvupóst, skönnuð skjöl, myndir ofl.
- One Records,sem er málakerfi sem gerir fyrirtækjum kleift að stofna mál og flokka skjöl undir þau. Hvert mál hefur ákveðinn líftíma, öryggi, ábyrgðarmann, einkvæmt númer, málaflokkun, bréfalykil og aðrar upplýsingar sem skipta máli við úrvinnslu málsins. Öll kerfin byggja á Microsoft stýrikerfi og vef-viðmóti og uppfylla ýtrustu kröfur um skjalaöryggi Helstu kostir One kerfa eru léttur biðlari, hraði, öflugar aðgangsstýringar, öryggi á gögn ásamt einföldu og þægilegu viðmóti fyrir notandann.
Öll kerfin byggja á Microsoft stýrikerfi og vef-viðmóti og uppfylla ýtrustu kröfur um skjalaöryggi. Helstu kostir One kerfa eru léttur biðlari, hraði, öflugar aðgangsstýringar, öryggi á gögn ásamt einföldu og þægilegu viðmóti fyrir notendur.
Vefur VM - skjámynd.
< Fyrri | Næsta > |
---|