OnePortal Citizen - vefgátt fyrir íbúa
Vefgátt fyrir íbúa, betri þjónusta á hagkvæman hátt, allan sólarhringinn, alla daga.
OnePortal er vefgátt sem byggir á Microsoft. stýrikerfum og vefumhverfi og er viðbót við OneRecords mála- og skjalakerfið. OnePortal gerir sveitarfélögum kleift að veita íbúum þjónustu 24/7 tuttugu og fjóra tíma á sólahring, sjö daga vikunnar. OnePortal gerir sveitarfélögum kleift að veita meiri þjónustu til íbúa þess án þess að þenja út yfirbyggingu sveitarfélagsins. Stór hluti af útgjöldum sveitarfélaga er vegna skólamála, svo sem leikskóla og grunnskóla. Með því að gera þessa þjónustu meira sjálfvirka og aðgengilega hvenær sem er sólarhringsins sparast mikil vinna og peningar. Flestir vefir sveitarfélaga eru með einhliða upplýsingastreymi, þ.e. fundargerðir og aðrar upplýsingar eru settar á vefinn, en með OnePortal er tvíhliða upplýsingastreymi mögulegt (Interactive). Rafrænir innri ferlar eru tengdir við þjónustugátt fyrir t.d. íbúa eða aðra viðskiptavini sveitarfélagsins, þar sem viðskiptavinir/íbúar geta afgreitt sig sjálfa á sjálfvirkan máta með því að fylla út umsóknir á vefnum. Umsóknarferli hjá sveitarfélögum geta verið af mörgum toga. One kerfin eru því með innbyggða ferla (OneProcess®). Þjónustan er því veitt út frá þörfum íbúana og út frá viðskiptavinum sveitarfélagsins. OnePortal® hefur sér sýn (profile) fyrir hvern íbúa/viðskiptavin/bæjarfulltrúa/nefndarmann og dregur fram upplýsingar fyrir hann úr mála- og upplýsingakerfum bæjarins, svo sem stöðu fasteignagjalda, leikskólagjalda, fundargerðir og stöðu sinna mála og umsókna. Íbúar hafa því tök á að sjá stöðu á sínum málum við sveitarfélagið á hverjum tíma í vefgáttinni.
Hverjum hentar OnePortal?
OnePortal hentar t.d. bæjarfélögum, fyrirtækjum og stofnunum vel, sem vilja bæta þjónustu við íbúa eða viðskiptavini og gera hana meira sjálfvirka. Kerfið er einfalt í umsjón og að starfsmenn (s.s. kerfis- og skjalastjórar) sveitarfélagsins geta verið sjálfbjarga með að útbúa nýjar umsóknir frá vefgáttinni og/eða innri umsóknarferla í málakerfi.
- OnePortal hjálpar sveitarfélögum að geta verið sem mest sjálfbjarga með rafræna þjónustu við íbúana.
- OnePortal sparar verulega vinnu og umsýslu hjá sveitarfélögum.
- Hægt er að fá margar mismunandi eininar við OnePortal, svo sem Mín mál, Umsóknir, Samráð, Fréttir, Spjall, Greiðslustaða og Kvartanir/athugsemdir.
- Auðvelt er að setja upp innri/ytri ferla umsókna/mála.
- Hægt er að tengja One kerfi við flesta gagnagrunna og bókhaldskerfi, svo sem Oracle, MS SQL, Navision, Informix, IBM DB2 eða t.d. ERP kerfi.
Útfærslur af OnePortal
Það kom fljótt í ljós við þróun á OnePortal að vefgáttina mátti nýta í margt. Vefgáttina er því í dag hægt að fá í nokkrum útfærslum sem sniðnar hafa verið fyrir ólíkar þarfir. Þær helstu voru þróaðar fyrir sveitarfélög með rafræna stjórnsýslu í huga, en einnig hefur orðið til mikil eftirspurn frá fyrirtækjum sem nýtt hafa kosti OnePortal.
Það kom fljótt í ljós við þróun á OnePortal að vefgáttina mátti nýta í margt. Vefgáttina er því í dag hægt að fá í nokkrum útfærslum sem sniðnar hafa verið fyrir ólíkar þarfir. Þær helstu voru þróaðar fyrir sveitarfélög með rafræna stjórnsýslu í huga, en einnig hefur orðið til mikil eftirspurn frá fyrirtækjum sem nýtt hafa kosti OnePortal.
Að auki þessara er einnig hægt að fá OnePortal Employee starfsmannagátt, OnePortal Information upplýsingagátt og OnePortal Project verkefnagátt. Vinsamlega hafið samband við sölu- eða þjónustudeild með nánari upplýsingar um þau kerfi.
Kröfur:
Biðlari: Windows XPpro/Win7 Internet Explorer 7.0 / 8.0 eða nýrri.
Miðlari: Windows 2003/2008 Vefþjónn eða nýrri, MS SQL 2005/2008 eða nýrri.
Miðlari: Windows 2003/2008 Vefþjónn eða nýrri, MS SQL 2005/2008 eða nýrri.
< Fyrri | Næsta > |
---|