Snæfellsbær hefur gert samning við hugbúnaðarfyrirtækið OneSystems um kaup á OneRecords skjala- og málakerfi, auk kerfa m.a. fyrir rafrænar fundargerðir, OneMeeting einnig festi bærinn kaup á kerfi fyrir tæknideildina OneLand . kerfi fyrir byggingarfulltrúa, auk og annara kerfa, sem m.a. munu auka skilvirkni og þjónustu bæjarfélagsins við íbúa bæjarins.
.þar sem Jökulinn ber við loft.
Snæfellsbær er á utanverðu Snæfellsnesi. Bæjarmörkin eru annars vegar í Staðarsveit, rétt vestan við Vegamót og hins vegar að norðan í Búlandshöfða. Bæjarfélagið er um 680 ferkílómetrar að stærð og íbúar þess eru um 1800. Flestir búa í þéttbýliskjörnunum Ólafsvík, Rifi og Hellissandi, en aðrir íbúar eru dreifðir um sveitir þess, Fróðárhrepp, Breiðuvík og Staðarsveit, eða minni þéttbýliskjarna á Hellnum og Arnarstapa. Í bæjarfélaginu eru því víðáttumikil óbyggð svæði þar sem auðvelt er að komast í snertingu við óspillta náttúru.
Hringvegur er um Snæfellsbæ og ef komið er akandi frá Reykjavík eftir vegi 54 er við Fróðárheiði hægt að velja að aka yfir heiðina og norður fyrir og þaðan hring um Jökulinn eða að aka um Útnesveg eftir vegi 574 í hring norðurfyrir. Snæfellsjökull er því nokkurs konar miðja í bæjarfélaginu sem sést víða að.
< Fyrri | Næsta > |
---|