Frétt frá vef Mosfellsbæjar 18. ágúst 2008
Mosfellsbær í framvarðarsveit í rafrænni stjórnsýslu
-Íbúar komnir í beint samband við bæinn sinn-
Mosfellsbær hefur í dag tekið í notkun svokallaða íbúagátt, sem eru rafrænar dyr að stjórnsýslu Mosfellsbæjar, og skipar sér þar með í framvarðarsveit sveitarfélaga í beitingu upplýsingatækni í stjórnsýslu. Með þjónustunni hefur Mosfellsbær þar með stigið enn eitt skrefið í að gera stjórnsýsluna aðgengilegri og auðveldar um leið íbúum bæjarins að nálgast þjónustu á vegum sveitarfélagsins.
Mynd: Bæjarstjóri og bæjarritari opna upp á gátt
.Með tilkomu íbúagáttarinnar hefur Mosfellsbær stigið mikilvægt skref í átt að markmiðum sínum um skilvirka og ábyrga stjórnsýslu. Segja má að með íbúagáttinni séu bæjarbúar komnir í beint samband við bæinn sinn því nú geta þeir með rafrænum hætti sótt um þjónustu til sveitarfélagsins, sent inn formleg erindi, fylgst með framgangi sinna mála, skoðað greiðslustöðu, komið ábendingum á framfæri og ýmislegt fleira. segir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri.
Í nýlegri skýrslu sem unnin var í kjölfar mikillar stefnumótunarvinnu fyrir Mosfellsbæ kemur fram að ein af meginstefnuáherslum Mosfellsbæjar er að vera leiðandi í rafrænni stjórnsýslu, með stuttan afgreiðslutíma erinda og gott aðgengi að þjónustu. Með tilkomu íbúagáttarinnar hefur því markmiði nú verið hrint í framkvæmd.
Þess má geta að íbúagáttarkerfið er unnið af hugbúnaðarfyrirtækinu OneSystems.
< Fyrri | Næsta > |
---|