Ríkisendurskoðun gerir samkomulag um kaup á nýju skjalastjórnunarkerfi
- Ný kerfi hjá Ríkisendurskoðun frá OneSystems
Ríkisendurskoðun hefur gert samkomulag um kaup á kerfum frá One Systems. Nýju kerfin munu leysa af hólmi eldri kerfi. Um er að ræða kerfin:
- One Records, sem er mála og skjalastjórnunarkerfi sem gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að stofna mál og flokka skjöl undir þau. Hvert mál hefur ákveðinn líftíma, öryggi, ábyrgðarmann, einkvæmt númer, málaflokkun, málalykil og aðrar upplýsingar sem skipta máli við úrvinnslu málsins.
Kerfin byggja á Microsoft stýrikerfum og vef-viðmóti og uppfylla ýtrustu kröfur um skjalaöryggi og rekjanleika. Helstu kostir One kerfa eru léttur biðlari, hraði, öflugar aðgangsstýringar, öryggi á gögn ásamt einföldu og þægilegu viðmóti fyrir notandann og þægileg vinnsla á móti Microsoft Office.
Um Ríkisendurskoðun
Ríkisendurskoðun er sjálfstæð stofnun sem starfar á vegum Alþingis skv. lögum nr. 86/1997. Hún er hluti löggjafarvaldsins og þáttur í eftirliti þess með framkvæmdarvaldinu. Meginhlutverk hennar er að endurskoða ríkisreikning og reikninga ríkisaðila, hafa eftirlit með og stuðla að umbótum á fjármálastjórn ríkisins og nýtingu almannafjár. Forsætisnefnd Alþingis skipar yfirmann stofnunarinnar, ríkisendurskoðanda, til sex ára. Megingildi Ríkisendurskoðunar eru fagmennska, heilindi, óhlutdrægni, óhæði og trúverðugleiki.
Á myndinni að ofan frá vinstri: Lárus Ögmundsson frá Ríkisendurskoðun og Ingimar Arndal, framkvæmdastjóri OneSystems við undirskrift samninga.
< Fyrri | Næsta > |
---|