OneComplain - Ábendinga- og kvartanakerfi
Hvað er OneComplain?
OneComplain er ábendinga- og kvartanakerfi sem byggir á Microsoft. stýrikerfum og vef-umhverfi og er viðbót við OneCrm. OneComplain er mjög vel til þess fallið að halda utan um um ábendingar, hugmyndir eða kvartanir frá innri eða ytri viðskiptavinum. OneComplain gerir notendum mögulegt að skrá allar ábendingar/kvartanir á einn stað á staðlaðan hátt. Allar skráningar fara sjálfkrafa í úrvinnsluferli sem fer eftir eðli málsins. Með OneStatistics greiningartólinu er hægt að skoða allar skráningar á marga mismunandi vegu. T.d. eftir skráningaraðila, þjónustuþætti/ástæðu, úrvinnsluaðila o.s.frv. Mikil áhersla er lögð á gefa stjórnendum góða yfirsýn yfir allar skráningar sem tengjast þeirra þjónustusviði. Hægt er að senda sjálfvirkar áminningar til úrlausnaraðila/skráningaraðila eftir ákveðinn tíma ef ekki er búið að loka ábendingu,kvörtun eða hugmynd. Einnig er hægt að flytja tölulegar upplýsingar um skráningar yfir í Excel skjal þar sem hægt er að birta upplýsingarnar í ýmisskonar súlu- og kökuritum.
Af hverju OneComplain?
OneComplain er fyrst og fremst hagnýtt tól fyrir þann hluta starfsfólks sem tekur á móti kvörtunum, ábendingum og hugmyndum frá innri sem ytri viðskiptavinum. OneComplain gefur stjórnendum fyrirtækja möguleika á að koma áleiðis gæðahugsun í samskiptum við viðskiptavini og hvernig bregðast skuli við kvörtunum, ábendingum og hugmyndum.
- OneComplain hjálpar fyrirtækjum og starfsmönnum þeirra að öðlast raunhæft skynbragð á ánægju viðskiptavina.
- OneComplain hjálpar fyrirtækjum að bæta ímynd sína og auka hagnað.
- OneComplain eykur skilning á mikilvægi þess að viðskiptavinir séu ánægðir.
- OneComplain eykur tryggð viðskiptavina.
- OneComplain hjálpar fyrirtækjum að nýta gagnrýni á jákvæðan hátt.
Kröfur:
Biðlari: Windows XPpro/Win7 Internet Explorer 7.0 / 8.0 eða nýrri.
Miðlari: Windows 2003/2008 Vefþjónn eða nýrri, MS SQL 2005/2008 eða nýrri.
Miðlari: Windows 2003/2008 Vefþjónn eða nýrri, MS SQL 2005/2008 eða nýrri.
< Fyrri | Næsta > |
---|