JA cPanel

OneSystems Ísland

OneRecords
OneRecords er málakerfi (Records management) sem gerir fyrirtækjum kleift að stofna mál og flokka skjöl undir þau. » meira
OneLand
OneLand er öflug lausn sem auðveldar byggingarfulltrúaembættum hjá sveitarfélögum að halda utan um mál og öryggi á skjölum. » meira
OneCrmSQL
OneCrm SQL Enterprise er samskipta- og skjalastjórnunarkerfi. Byggir á Microsoft vefviðmóti og keyrir á SQL Server. » meira

"Þjónusta í þína þágu" - Mosfellsbær velur hugbúnaðarkerfi frá One Systems

Við undirritun samnings við Mosfellsbæ

Á myndinni frá vinstri: Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri í Mosfellsbæ, Ingimar Arndal frá One Systems og Stefán Ómar Jónsson bæjarritari Mosfellsbæ að lokinn undirskift samninga

Hugbúnaðarkerfin koma til með að þjóna öllum sviðum bæjarins og verða sett upp á bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar í Kjarna.

Um er að ræða kerfin:
One CRM, sem er samskipta- og skjalastjórnunarkerfi. Kerfið kemur skipulagi á öll óformuð skjöl, svo sem Word, Excel, tölvupóst, skönnuð skjöl, myndir o.s.frv.

One Records, sem er málakerfi sem gerir Mosfellsbæ kleift að stofna mál og flokka skjöl undir þau. Hvert mál hefur ákveðinn líftíma, öryggi, ábyrgðarmann, einkvæmt númer, málaflokkun, bréfalykil og aðrar upplýsingar sem skipta máli við úrvinnslu málsins. Öllu erindi sem til bæjarins koma eru sett í rafrænt form, t.d. bréf og umsóknir skannaðar inn og mál sett í fast og öruggt vinnsluferli.

One Meeting, sem er fundabókunarkerfi sem gerir Mosfellsbæ kleift að búa til fundarbókanir og senda þær út til fundarmanna á einfaldan og þægilegan hátt í föstu þægilegu verkferli. OneMeeting getur haldið utanum um allar nefndir bæjarins, verkhópa, starfmenn deilda sem vinna saman í hópvinnu að tilteknum verkefnum eða hittast á reglulega á fundum.

One Calendar, sem gerir starfsmönnum kleift að skrá viðveru sína ásamt því að auðvelda til muna símsvörun í þjónustuveri Mosfellsbæjar.

Samþætting upplýsingakerfa Mosfellsbæjar - Auk ofangreindra kerfa frá One Systems var samið fyrirtækið um samþættingu, þróun og aðlögun ýmissa upplýsingakerfa sem eru í notkun á bæjarskrifstofunum að One kerfunum í eitt samfellt viðmót til að auðvelda rafræna ferla innan Mosfellsbæjar. Kerfin verða nýtt m.a. af fjölskyldu- fræðslu- og tæknisviðum bæjarins, auk stjórnsýslunnar allrar.

Viðbótarkerfi sem tekin verða upp eru, starfsmannakerfi og ábendingakerfi, auk fleiri kerfiseininga frá One Systems.

Öll kerfin byggja á Microsoft stýrikerfi og vef-viðmóti og uppfylla ýtrustu kröfur um skjalaöryggi. Helstu kostir One kerfa eru léttur biðlari, hraði, öflugar aðgangsstýringar, öryggi á gögn ásamt einföldu og þægilegu viðmóti fyrir notandann.

Stefán Ómar Jónsson bæjarritari sem undirritaði samninginn fyrir hönd Mosfellsbæjar telur að eftir innleiðingu þessara nýju hugbúnaðarkerfa muni öll stjórnsýsla hjá Mosfellsbæ taka miklum breytingum, þar sem allt öryggi í meðferð og vinnslu erinda frá viðskiptavinum bæjarskrifstofanna muni aukast verulega.

Slagorð okkar er .þjónusta í þína þágu. þetta er liður í því að auka, einfalda og vonandi bæta þjónustu við íbúa Mosfellsbæjar og viðskiptavini alla, sagði Stefán í tilefni undirritunar samningsins.

Fréttayfirlit OneSystems - yfirlit allra frétta
 

Sími þjónustudeildar

Þjónustudeild

Samband
sími: 588 1050
og 588 1060
opið: 9-17 virka daga

TeamViewer hjálp í gegnum netið

Söludeild

Söludeildsími. 660-8551
tölvupóstur:

Umsagnir

"Tónastöðin eykur skilvirkni í samskiptum við birgja með OneCrm"
Andrés Helgason framkvæmdastjóri Tónastöðvarinnar

"Í samskiptum við um 300 birgja víðs vegar um heiminn er mikið mál að halda utan um allar viðskiptaupplýsingar. OneCRM kerfið léttir þetta starf verulega og tryggir auðveldan og skjótan aðgang að þeim gögnum sem á þarf að halda hverju sinni."Tónastöðin

Andrés Helgason, framkvæmdarstjóri

OneSystems

OneWorkSpace.png