OneActiveDirectory - Kerfisstjórnunartól
Hvað er OneActiveDirectory?
OneActiveDirectory er kerfi sem gerir deildarstjórum það auðvelt að breyta upplýsingum um starfsmenn sem skráðir eru í Active Directory. Jafnvel er hægt að leyfa starfsmönnum að breyta upplýsingum um sjálfan sig. Aðgangur er takmarkanlegur fyrir hvern notanda og er einungis hægt að breyta þeim hlutum er maður hefur aðgang að.
Af hverju OneActiveDirectory?
Með því að nota OneActiveDirectory geta kerfisstjórar úthlutað sumum af þeim .rútínu. verkefnum sem þeir þurfa að sjá um sjálfir í dag. Til dæmis viðhald notandaupplýsinga í Active Directory. Þannig sparast dýrmætur tími kerfisstjóra auk þess sem auðveldara verður fyrir starfsmannastjóra/deildarstjóra að viðhalda upplýsingum um starfsmenn í Active Directory. Einnig er hægt að sjá í hvaða öryggis- og pósthópum hver starfsmaður er í. Með OneActiveDirectory® er hægt að setja starfsmenn í og taka úr hópum.
- OneActiveDirectory minnkar álagið á kerfisdeildum.
- OneActiveDirectory gerir deildum kleift að breyta upplýsingum sjálfstætt.
- OneActiveDirectory býður einnig upp á öfluga leitarmöguleika eftir símanúmeri, deild o.s.frv.
- Hægt er að stilla viðmót OneActiveDirectory að hverjum notanda. Þannig er hægt að aðgangsstýra aðgangi að ákveðnum aðgerðum og gefa ákveðnum notendum aðeins aðgang að ákveðnum hlutum í Active Directory.
- Auðvelt að aðlaga og breyta OneActiveDirectory.
Skoða / sækja PDF skjal
Kröfur:
Biðlari: Windows 95/98/NT/ME/2000/XP/Vista. Internet Explorer 6.0 eða nýrri.
Miðlari: Windows 2000/2003/2008 Server eða nýrri, MS SQL 2005 eða nýrri, Exchange 2000 SP3, IIS 5.0 eða nýrri. MSXML3.0 SP2 eða nýrri.
Næsta > |
---|